Sigurbjörn Jóhannesson

ID: 9858
Fæðingarár : 1830
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1877

Sigurbjörn Jóhannesson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1830. Dáinn í Manitoba árið 1877.

Maki: Guðný Aradóttir f. árið 1842 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 1901 í Manitoba.

Börn: 1. Kristbjörg f. 1861. Dáin 1895 2. Sigrún f. 1865 3. Herborg f.1867. Dáin 1893.

Guðný og Sigurbjörn fóru vestur árið 1874 og höfðust við í Kinmount í Ontario fyrsta árið. Fóru til Manitoba árið 1875 og dvöldu eitthvað í Winnipeg. Þar lést Sigurbjörn. Guðný var systir Skafta og fylgdi honum í Argylebyggð. Þurfti að sjá á eftir öllum dætrum sínum sem allar dóu fyrir 1900. Guðný flutti einsömul til Skafta og dó þar.