ID: 9863
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1903

Skafti Arason og Anna Jóhannsdóttir Mynd FAtV
Skafti Arason var fæddur í Hamri í Laxárdal í S. Þingeyjarsýslu árið 1850. Dáinn 1903
Maki: 1877 Anna Guðrún Jóhannsdóttir fædd árið 1849 í S. Þingeyjarsýslu.
Börn: 1.Tryggvi f. 27. apríl, 1878 2. Guðrún 3. Óli 4. Ágúst 5. Guðný 6. Hermann d. 1920 í Rochester, Minnesota
Skafti fór vestur árið 1874 og dvaldi í Kinmount fyrsta árið. Fór með landkönnunarnefndinni sumarið 1875 til að finna svæði undir Nýja Ísland. Hann dvaldi í Selkirk fram á haustið það ár en fór síðan með fyrsta hópnum til Nýja Íslands í október. Hann nam land í Víðirnesbyggð og nefndi Kjalvík. Flutti úr nýlendunni snemma vors árið 1882 og tók land í Argylebyggðinni. Anna fór vestur til Nýja Íslands árið 1876.
