ID: 9874
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Matthildur Guðmundsdóttir fæddist 28. febrúar, 1886 í S. Múlasýslu.
Maki: Karl Sigurðsson Malmquist fæddist 11. september, 1871 í N.Múlasýslu.
Barnlaus en ólu fósturson, Þóri Jónsson f. 17. nóvember, 1907. Mun hafa verið bróðursonur Matthildar.
Karl flutti vestur til Winnipeg árið 1914 með móður sinni, Friðriku Friðriksdóttur, Tengdamóður sinni, Halldóru Jónsdóttur og fóstursyninum Þóri. Matthildur fór vestur þangað árið áður. Þau voru í Manitoba í tvö ár en fluttu síðan til Keewatin í Ontario þar sem Karl vann hjá Lake of the Woods Milling Co.
