Karl Malmquist

ID: 9875
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Karl Malmquist Mynd Almanak 1936

Matthildur Guðmundsdóttir Mynd Almanak 1936

Karl Sigurðsson Malmquist fæddist 11. september, 1871 í N.Múlasýslu.

Maki: Matthildur Guðmundsdóttir f. 28. febrúar, 1886 í S. Múlasýslu.

Barnlaus en ólu fósturson, Þóri Jónsson f. 17. nóvember, 1907. Mun hafa verið bróðursonur Matthildar.

Karl flutti vestur til Winnipeg árið 1914 með móður sinni, Friðriku Friðriksdóttur, Tengdamóður sinni, Halldóru Jónsdóttur og fóstursyninum Þóri. Matthildur fór vestur þangað árið áður.  Þau voru í Manitoba í tvö ár en fluttu síðan til Keewatin í Ontario þar sem Karl vann hjá Lake of the Woods Milling Co.