Magnea Pétursdóttir

ID: 9969
Fæðingarár : 1846
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1920

Guðlaug Magnea Ingibjörg Pétursdóttir fæddist 21. janúar, 1846 í Reykjavík. Dáin 3. febrúar, 1920.

Maki: Hermann Hjálmarsson f. í S. Múlasýslu 20.desember, 1847, d. 5. febrúar, 1935.

Börn: 1. Kirstín f. 5. febrúar, 1877 2. Pétur f. 1879 3. Hjálmar f. 1879 4. María f. 1881 5. Þórhallur f. 1883 6. Halldóra f. 1886 7. Theódóra.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1890 og settust að í Garðarbyggð í N. Dakota. Hermann vann verslunarstörf í Edinburg þorpi og seinna fluttu þau til Winnipeg og þar vann hann hjá vikublaðinu Lögbergi. Sumrunum sínum eyddu þau á landi sínu í Víðirbyggð.