ID: 10043
Fæðingarár : 1866
Dánarár : 1938

Jörundur Sigurbjörnsson Mynd VÍÆ 5
Jörundur Sigurbjörnsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 26. maí, 1866. Dáinn í Alberta í Kanada árið 1938.
Maki: Anna Jónasdóttir f. 1864, d. í Manitoba árið 1919.
Börn: 1. Baldrún f. 1886 2. Sigurbjörn f. 1888 3. Emilía
Þau fluttu vestur til N. Dakota árið 1893 og bjuggu eitt ár í Mountain. Fluttu þaðan til Manitoba og námu land á tanga við norðanvert Manitobavatn, sem Jörundur nefndi Siglunes. Þar myndaðist smám saman lítil, íslensk byggð. Jörundur flutti seinna vestur að Kyrrahafi og settist að í Blaine en fór þaðan austur til Alberta og settist að í Athabaska Landing þar sem hann lést.
