Anna Jónasdóttir

ID: 10044
Fæðingarár : 1864
Dánarár : 1919

Anna Jónasdóttir Mynd VÍÆ 5

Anna Jónasdóttir fæddist árið 1864 í Þingeyjarsýslu. Dáin í Manitoba árið 1919.

Maki: Jörundur Sigurbjörnsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 26. maí, 1866. Dáinn í Alberta í Kanada árið 1938.

Börn: 1. Baldrún f. 1886 2. Sigurbjörn f. 1888 3. Emilía f.1893.

Þau fluttu vestur til N. Dakota árið 1893 og bjuggu eitt ár í Mountain. Fluttu þaðan til Manitoba og námu land á tanga við norðanvert Manitobavatn, sem Jörundur nefndi Siglunes. Þar myndaðist smám saman lítil, íslensk byggð.