Sigríður Jónsdóttir

ID: 10049
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Sigríður Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1851.

Maki: 6. september, 1876 Friðrik Sigurbjörnsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1849. Séra Páll Þorláksson gaf þau saman.

Börn: 1. Frank f. 25. september, 1877 í Winnipeg 2, Friðrikka f. 27. mars, 1879. Þau voru fyrstu, íslensku börnin fædd í Winnipeg svo vitað sé.

Hún fór vestur með Guðmundi bróður sínum til Kinmount í Ontario árið 1874. Þau fluttu þaðan ári seinna til Winnipeg og bjuggu þar. Foreldrar þeirra, Jón Árnason og Rebekka Guðmundsdóttir fluttu þangað árið 1876. Friðrik var samferða systkinunum frá Íslandi til Ontario og þaðan áfram til Winnipeg þar sem Friðrik byggði hús í Shanty Town nr. 6 Hudson´s Bay Flats. (SÍV 5, bls. 322).