Kristveig Jónsdóttir

ID: 10139
Fæðingarár : 1876
Dánarár : 1941

Kristveig Jónsdóttir fæddist 30. maí, 1876. Dáin í Manitoba  8. júlí, 1941.

Maki: 20. desember, 1896 Sigurbjörn Benediktsson f. 16.júlí, 1875 í N. Þingeyjarsýslum d.20. desember,1960 í Lundarbyggð. Sigurbjorn Benedictson vestra.

Börn: 1. Hólmfred f. 1894, d. 1972 2. Hjalti f. 1897, d. 1928 3. Kristín Sigríður f. 7. maí, 1899, d. 31. janúar, 1929 4. Jóhanna f. 1900 5. Hólmfríður Sigrún f. 10. mars, 1902 6. Valgerður f. 1904 7. Haraldur f. 1906 8. Friðjón Benedikt f. 1909 9. Ósk Aðalheiður f. 1912, d. 1949 10. Lilja Sigurrós f. 1915 11. Laura f. 1918.

Kristveig fór vestur árið 1879 með sínum foreldrum, Jóni Frímanni Kristjánssyni og Kristínu Jónsdóttur. Sigurbjörn og Kristveig byggðu sér bjálkahús við Íslendingafljót norður af Riverton. Þar hét Bjarkarvellir. Árið 1910 fluttu þau í Lundarbyggð og námu land nærri Otto. Sigurbjörn flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1879 með foreldrum sínum, Benedikt Kristjánssyni og Hólmfríði Kristjánsdóttur. Þau settust að í Nýja Íslandi þar sem Sigurbjörn ólst upp.