Ágúst Gunnarsson

ID: 10150
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : N.Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1944

Ágúst Gunnarsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 29. júní, 1865. Dáinn í Winnipeg 14. október, 1944. Ágúst G. Pálsson eða Polson vestra.

Maki: 3. júní, 1888 Elísabet Gísladóttir f. í Skagafjarðarsýslu árið 1870.

Börn: 1. Jóhanna 2. Elisabet Hazeltine 3. Archibald Jón 4. Florence Nightingale 5. Margrét 6. Ágústa Sigríður 7. Robert Wyatt 8. Drengur, d. fárra daga gamall 9. Lína Byron 10. Fjóla Alexandra 11. Jóhann Konráð.

Ágúst fór vestur til Nýja Íslands með foreldrum sínum árið 1879. Flutti með þeim til Winnipeg eftir nokkur ár og bjó þar lengstum. Elísabet fór vestur til Winnipeg með móður sinni, ekkjunni Elísabetu Þuríði Jónsdóttur, og systkinum árið 1876.