Rannveig Sveinbjörnsdóttir

ID: 10257
Fæðingarár : 1836
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1922

Rannveig Sveinbjörnsdóttir, tvö börn hennar og dóttursonur Mynd FLNÍ

Rannveig Sveinbjörnsdóttir f. í N. Múlasýslu árið 1836. Dáin í Winnipeg 9. september, 1922.

Sambýlismaður: Einar Guðmundsson fæddist 17. júlí, 1834 í N. Þingeyjarsýslu, d. í Winnipeg 15. október, 1906.

Börn: 1. Karl f. 1871, tvíburi 2. Albína f. 1871 d. úr bólusótt 1876 3. Tryggvi f. 1874, d. 1877. Rannveig átti frá fyrra hjónabandi 1. Jónas Brynjólfsson f. 1859 2. Brynjólfína Brynjólfsdóttir f. 1863.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876, settust að í Árnesbyggð í Nýja Íslandi. Þar námu þau land suður af Gimli og nefndu Engimýri. Þau fluttu þaðan eftir tvö ár og fóru út í Mikley þar sem þau aftur námu land og nefndu Fagratún. Fluttu þaðan árið 1882 til Winnipeg.