Sveinn Sveinsson

ID: 10265
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1916

Sveinn Sveinsson: Fæddur Á Daðastöðum í N. Þingeyjarsýslu 12. mars, 1856. Dáinn 1916 í Manitoba.

Maki:19.maí, 1885 Kristín Jóhannesdóttir f. 7. janúar, 1857 í Dalasýslu.

Börn: 1. Jóhannes 2. Kristján d.1958 3. Sveinn 4. Ingiberg

Sveinn fór vestur árið 1879 og vann víða í Manitoba. Kristín fór vestur árið 1882. Þau hófu búskap í Grunnavatnsbyggð og voru þar til ársins 1894. Það ár fluttu þau í Hólabyggð og nam Sveinn land norðaustur af Glenboro. Hann keypti land nærri Assiniboine ánni og stundaði griparækt.