Rósamunda Guðmundsdóttir fæddist 30. júlí, 1864 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin 31. júlí, 1925 í Minnesota. Isfeld vestra.
Maki: 26. nóvember, 1892 Skúli Þorkelsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 31. maí, 1860. Dáinn í Lincoln sýslu 25. nóvember, 1924. Gudmundson vestra.
Börn: 1. Stefán (Stephen) Hallgrímur f. 4. október, 1893 2. Anna Sigríður f. 22. febrúar, 1895, tvíburi 3. Sigríður (Sarah) Katrín f. 22. febrúar, 1895 4. Jón Valdimar f. 6. mars, 1898, d. barn 5. Þorbjörg (Bertha) Jóhanna f. 21. október, 1900 6. Rósa f. 13. janúar, 1904 7. Jón Valdimar f. 21. maí, 1907 8. Björn f. 1908 9. Margrét Aðalbjörg f. 14. júlí, 1912.
Skúli flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Þorkeli Guðmundssyni og Önnu Sigríði Skúladóttur. Þau settust að í Lincoln sýslu í Minnesota og þar bjó Skúli alla tíð. Rósamunda flutti vestur árið 1879 með föður sínum, Guðmundi Guðmundssyni og konu hans, Rósu Einarsdóttur og systkinum. Þau settust að í Lincoln sýslu í Minnesota.
