ID: 10285
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1933
Aðalbjörg Jónsdóttir fæddist árið 1853 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 25. febrúar, 1933 í Minnesota. Ísfeld vestra.
Maki: 1) Árni Jónsson d. 1874 2) Guðjón Guðmundsson f. 22. febrúar, 1854 í Þingeyjarsýslu. Dáinn 21. desember, 1943. Ísfeld vestra.
Börn: 1. Árni f. 1878 2. Jón (John) Tryggvi f. 1882 3. Sigtryggur Jón f. 1884 4. Árni Luther f. 1886 5. Rósadína (Rose Adina) f. 1889 6. Jóna Sigurbjörg f. 1891 d.1892 7. Steingrímur Eiríkur f. 1893. 8. Margrét Elísabet f. 22. febrúar, 1896. Aðalbjörg átti soninn Sigtrygg Árnason af fyrra hjónabandi. Hann var fæddur 1874 og tók nafnið Ísfeld vestra.
Þau fóru vestur til Minnesota, samferða foreldrum og systkinum Guðjóns árið 1879. Þau settust að í Lincoln byggð og nefndu staðinn Grund.
