María Þorsteinsdóttir fæddist 7. janúar, 1862 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin 30. júní, 1933 í Minnesota.
Maki: Pétur Vigfússon fæddist 25. mars árið 1862 í N. Múlasýslu, d. í Minnesota 14. desember, 1918. Skrifaði sig Peterson vestra.
Börn: 1. Rósa (Rose) f. 13. nóvember, 1886 2. Gunnlaugur f. 26. maí, 1888; d. 22. maí, 1971 3. Pétur f. 1892; d. 10. ágúst, 1907. 4. Carl f. 7. desember, 1896. 5. Óskar f. 23. apríl, 1899 6. John f. 1900; d. 1900 7. Árni f. 15. apríl, 1901; d. 6. október, 1962. 8. Lilja f. 10. október, 1905.
Pétur flutti vestur með móður sinni, Halldóru Jónsdóttur og Gunnlaugi bróður sínum árið 1876. Þau bjuggu fyrst í Lyon sýslu en Pétur nam land seinna í Lincoln sýslu. María var dóttir Þorsteins Sigurðssonar og Guðnýjar Ólafsdóttur.
