Þorsteinn Þorsteinsson

ID: 10323
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1917

Þorsteinn Þorsteinsson fæddist 24. maí, 1857 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Lincoln sýslu í Minnesota 31. október, 1917. Stone vestra

Maki: 1) Solveig Sigurðardóttir f. 1864 í N. Múlasýslu 2) 16. október, 1904 Guðmunda María Eyjólfsdóttir f. 10. apríl, 1880 d. 20. ágúst, 1979.

Börn: Með Solveigu 1. Jón f. 24. nóvember, 1883 2. G. Ágúst f. 20. ágúst, 1885 3. Elísa Sigríður f. 13. júní, 1891 4. Petra Sigurveig f. 14. apríl, 1894 5. Lilja María f. 22. ágúst, 1898. Með Guðmundu 1. Sigrún Kristín f. 4. ágúst, 1905 2. Solveig May f. 9. maí, 1907 3. Aurora f. 10. janúar, 1910 4. Amilía June f. 5. júní, 1912.

Þorsteinn flutti vestur til Minnesota árið 1880 og settist að í Lincoln sýslu í Minnesota. Solveig var dóttir Sigurðar Sigurðssonar og Arnþrúðar Jónsdóttur sem vestur fóru árið 1879 frá Vopnafirði. Foreldrar Guðmundu, Eyjólfur Guðmundsson og Katrín Björnsdóttir fluttu vestur til Minnesota árið 1880.