María Jónsdóttir

ID: 10327
Fæðingarár : 1836
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1907

María Jónsdóttir fæddist árið 1836 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 17. desember, 1909 í Glenboro í Manitoba.

Maki: Kristján Sigurðsson f. árið 1845 í S. Þingeyjarsýslu, d. í Manitoba árið 1924.

Börn: Halldóra Sigríður f. 1868, varð eftir á Íslandi. Þau tóku Jónínu Sigurveigu Guðnadóttur í fóstur.

Kristján og María fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og þaðan í Argylebyggð. Voru þar í nokkur ár áður en þau fluttu til Glenboro rétt fyrir aldamótin.