Vigfús Stefánsson

ID: 10383
Fæðingarár : 1893

Vigfús Stefánsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 3. október, 1893. Baldvinsson vestra.

Maki: 11. nóvember, 1920 Salóme Friðbjarnardóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 28. febrúar, 1893. Baldvinsson vestra.

Börn: 1. Walter Baldvin f. 22. október, 1921, d. 25. apríl, 1944 í Seinni heimstyrjöldinni 2. Franklín Darwin f. 11. febrúar, 1923 3. Kristbergur Stefán f. 15. desember, 1924 4. Joseph Bennet f. 30. október, 1928 5. Verne Darwin f. 2. október, 1930.

Vigfús flutti vestur um haf árið 1903 með föður sínum, Stefáni Baldvinssyni, konu hans og systkinum. Hann var bakari í Vesturheimi. Salóme flutti vestur til Winnipeg árið 1910 þar sem hún vann til ársins 1920. Það ár flutti hún með manni sínum til Regina í Saskatchewan. Árið 1932 fluttu þau til Wynyard og þaðan til Winnipeg árið 1945. Þau settust svo að í Vancouver. Salóme hafði áhuga á félagsmálum landa sinna, var í Jóns Sigurðssonar félaginu í Winnipeg og seinna kvenfélaginu Framsókn í Wynyard.