Björn Einarsson

ID: 10398
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1933

Björn Einarsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1862. Dáinn í Glenboror 5. nóvember, 1933.

Maki: 1) Steinunn Jóhannesdóttir úr Skagafirði 2) 1930 Sigurlaug Einarsdóttir f. 1865 í N. Þingeyjarsýslu.

Börn: Með Steinunni 1. Wilman Helgi.

Björn fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum og systkinum árið 1887. Hann nam land í Argylebyggð og bjó á því í 15 ár. Fór þaðan til Glenboro og síðan til Selkirk. Fór þaðan árið 1930 til baka til Glenboro og bjó þar.