ID: 10417
Fæðingarár : 1826
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Þórunn Steinsdóttir fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1826.
Maki: Sigurbjörn Friðriksson f. 1828, þau skildu.
Börn: 1. Friðrik f. 1849 2. Sigurður f. 1850 3. Sesselja Guðný f. 1851.
Þórunn fór fráskilin vestur til Kinmount í Ontario árið 1874 ásamt sonum sínum, Friðriki og Sigurði. Dóttir hennar, Sesselja Guðný fór vestur til Kanada með sínum manni, Friðsteini Sigurðssyni og syni þeirra árið 1879. Trúlega hefur Þórunn fylgt sonum sínum eftir vestur til Manitoba árið 1875 og sennilega búið í Winnipeg eins og Friðrik.
