Halldóra Geirsdóttir

ID: 10437
Fæðingarár : 1875
Dánarár : 1958

Kristín Halldóra Geirsdóttir Mynd VÍÆ III

Þórður Helgason Mynd VÍÆ III

Kristín Halldóra Ingibjörg Geirsdóttir fæddist  á Raufarhöfn í N. Þingeyjarsýslu 15. desember, 1875. Dáin 17. desember, 1958.

Maki: 27. júlí, 1897 Þórður Helgason f. í Mýrasýslu, 13. desember, 1872, d. 1. desember, 1960.

Börn: 1. Regína Jóhanna f. 19. maí, 1898 2.Geirþrúður Fedora Valgerður f. 18. desember, 1899 d. í bílslysi 13. janúar, 1953 3. Helga Magnea f. 9. september, 1905 4. Halldóra Soffía f. 11. nóvember, 1907 5. Ingiríður Ásta f. 20. júlí, 1916 6. Rebekka Florence f. 18. desember, 1916, d. 10. desember, 1947 7. Hannes Þórður Havstein d. 12 ára. Tvær dætur dóu ungar.

Kristín Halldóra var dóttir Geirs Gunnarssonar og Valgerðar Jónsdóttur sem bjuggu í Winnipeg. Þórður var sonur Helga Illugasonar og Ástu Einarsdóttur úr Mýrasýslu sem vestur fóru til Winnipeg árið 1887. Þórður nam land í Nýja Íslandi nærri Árborg og nefndi bæ sinn Laufás. Síðustu 20 árin bjuggu þau í Vancouver í Bresku Kolumbíu.