Andrea P Jónsdóttir

ID: 10442
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla

Andrea Petrea Jónsdóttir fæddist 20. ágúst, 1886 í N. Þingeyjarsýslu

Maki: Sveinn Guðjónsson fæddist 6. febrúar, 1881 í N. Múlasýslu, d. í Saskatchewan 11. mars, 1952. Vopni vestra

Börn: 1. Guðríður Petrea 2. Oddný Margrét 3. Þórunn Josephine

Andrea fór vestur til Manitoba árið 1893 með foreldrum sínum, Jóni Geirssyni og Andreu Lund. Sveinn fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum árið 1889 og áfram þaðan vestur í Argylebyggð. Þaðan lá svo leið þeirra í Vallarbyggð (Gerald) í Saskatchewan. Þar nam Sveinn land sem hann seinna seldi. Keypti annað nær Tantallon þorpinu og bjó þar í 40 ár. Flutti loks í Tantallonþorpið.