ID: 10456
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1925
Ásmundur Sigurðsson: Fæddur í N.Þingeyjarsýslu árið 1855. Dáinn í Manitoba árið 1925
Maki: Ingibjörg Jósefsdóttir f. í Þistilfirði í N.Þingeyjarsýslu árið 1858. Hún var systir Brynjólfs Jósefssonar, bónda í Hólabyggð.
Börn: 1. Sigurður f. 1884 2. Brynjólfný f. 1890 giftist Guðmundi Lambertsen, gullsmið í Glenboro 3. Sigurbjörg gift Stefáni B Stefánssyni í Glenboro.
Fóru vestur árið 1903 og bjuggu fyrstu árin í Hólabyggð. Námu þar aldrei land heldur fluttu til Glenboro. Með hjónunum vestur var Sigurður faðir Ásmundar og tökubarn, Petrea Björnsdóttir f. 1896.
