Skúli Árnason

ID: 10462
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1932

Skúli Árnason og Guðrún Hafliðadóttir Mynd Brot

Skúli Árnason: Fæddur á Sigurðarstöðum á Melrakkasléttu í N. Þingeyjarsýslu árið 1851. Dáinn 1932

Maki: 1) Sigríður Erlendsdóttir f. 1852 í Gullbringusýslu. Dáin 1881. 2) Margrét Sigþrúður Árnadóttir f. 1847 í Skagafjarðarsýslu 3) Guðrún Hafliðadóttir f. Mýrasýslu árið 1861. Dáin 1937

Börn: Með fyrstu konu: 1. Lára 2. Guðný 3. Hannes 4. Með annarri konu: 1. Jóhanna 2. Hjalti 3. Jón d. 1920 4. Karl. Með þriðju konu: 1. Valdimar 2. Sigríður 3. Marta 4. Albert 5. Veiga 6. Hilda 7. Fjóla

Skúli fór vestur með bróður sínum Halldóri (tvíburar) árið 1873. Voru fyrst í Parry Sound og Collingwood í Ontario en fóru þaðan til Wisconsin árið 1874 og unnu hjá bændum til ársins 1876. Bræðurnir tóku land í Nýja Íslandi árið 1876 syðst í nýlendunni og kölluðu Bræðraborg. Fluttu þaðan seinna að Dvergasteini.  Skúli flutti í Argylebyggð árið 1881 og voru bræðurnir með félagsbú þar til ársins 1901. Skúli flutti til Winnipeg árið 1914. Sigríður Erlendsdóttir fór vestur um haf með séra Jóni Bjarnasyni og konu hans Láru árið 1873 og var með þeim í Wisconsin. Séra Jón gaf þau Skúla og Sigríði saman í hjónband í Minneapolis 8. maí, árið 1876. Margrét Sigþrúður Árnadóttir var systir Jóns Júlíusar Árnasonar í Hólabyggð. Móðir þeirra var Margrét Jónsdóttir.