ID: 10630
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1899

Aðaljón Guðmundsson Mynd Almanak 1930
Aðaljón Guðmundsson: Fæddur í Þistilfirði N. Þingeyjarsýslu árið 1850. Dáinn í desember, 1899.
Maki: Ólöf Jónsdóttir fædd 1858 á Hólsfjöllum í N. Þingeyjarsýslu árið 1858. Þau giftust 1879 og fluttu vestur það ár.
Börn: Þau áttu 12 börn en 6 dóu í æsku. Öll voru fædd vestra. 1. Ólafur Soffonías 2. Kristín Soffía 3. Guðjón 4. Emilía Laufey 5. Kári Vilbert 6. Þrúður Margrét.
Voru fyrsta árið í Moorhead í Minnesota. Fluttu þaðan til Norður Dakota og námu land í nágrenni við þorpið Acton. Þar bjuggu þau í íslenskri sveit í 19 ár en fluttu haustið 1899 á Red Deer tanga í Winnipegosisvatni.
