Einar Eymundsson

ID: 10678
Fæðingarár : 1823
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1907

Einar Eymundsson: Fæddur á Langanesi í N. Þingeyjarsýslu árið 1823. D.1907

Maki: Þorbjörg Þorvarðardóttir f. 1823 í sömu sýslu

Börn: 1. Ása Ingibjörg f. 1849 2. Þorvarður f. 1851 3.  Júlíanna f. 1854 4. Matúsalem f. 1855 5. Hróbjartur f.1868

Einar og Þorbjörg fóru vestur 1883 til Winnipeg í Manitoba og námu land suðvestur af Pembina í N. Dakota. Árið 1900 fluttu þau í Framnes- og Árdalsbyggð í Nýja Íslandi. Júlíana fór vestur með sínum manni árið 1878 en hin börn þeirra voru þeim samferða, Ása Ingibjörg með sína fjölskyldu svo og Matúsalem og Þorvarður.