ID: 10945
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1943
Magnús Einarsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 1862. Skráður Grandy vestra. Dáinn í Washingtonríki 28. maí, 1943
Maki: 1892 Margrét Jónsdóttir f. í Vestmannaeyjum 3. október, árið 1862, d. 12. september, 1942.
Börn: 1. Kristinn Aðalsteinn 2. Jóhanna Margrét Lilja.
Magnús fór með móður sinni, Ágústu Magnúsdóttur og bróður vestur árið 1883 og vann við sitthvað í Manitoba og N. Dakota.
Keypti land í Pine Valley byggð og bjó þar til ársins 1907. Flutti til Blaine í Washingtonríki það ár.
