Halldór Bjarnason

ID: 10977
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1954

Halldór Bjarnason fæddist 29. nóvember, 1862 í Dalasýslu. Dáinn 29. janúar, 1954.

Maki: 1898 Margrét Árnadóttir f. í Skagafjarðarsýslu árið 1877.

Börn: 1. Lára Guðrún 2. Anna Margrét 3. Otto Harald.

Halldór fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886 og var þar rúmt ár en flutti þá til Glenboro. Réðst í verslun Friðjóns Friðrikssonar þar í bæ og vann þar í 12 ár. Vann svo við aðra verslun þar í bæ en árið 1907 flutti hann til Winnipeg og opnaði verslun á góðum stað í miðborginni. Margrét flutti vestur árið 1893.