ID: 10978
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Kristín Freysteinsdóttir fæddist í Gullbringusýslu árið 1872.
Maki: Egill Halldórsson fæddist 14. nóvember, 1870 í Dalasýslu. Dáinn 12. apríl, 1939. Reykjalín vestra.
Börn: 1. Rósa (Rose) 2. Pansy 3. Halldór 4. Russel 5. William 6. Freysteinn.
Kristín var dóttir Freysteins Jónssonar og Kristínar Eyjólfsdóttur í Gullbringusýslu og fór með þeim vestur árið 1886. Þau settust að í Þingvallabyggð í Saskatchewan. Egill fór vestur árið 1876 til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Halldóri Friðrikssyni og Sigurrósu Halldórsdóttur. Þau settust að í Nýja Íslandi fyrstu árin en fluttu svo suður til Mountain í N. Dakota árið 1880. Þar ólst Egill upp, nam svo land í Sherwood í N. Dakota og bjó þar alla tíð.
