Sigurjón Jónsson

ID: 10985
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Gullbringusýslu
Dánarár : 1940

Sigurjón Jónsson Mynd WtW

Guðrún Jónsdóttir Mynd WtW

Sigurjón Jónsson fæddist í Hafnarfirði í Gullbringusýslu 28. nóvember, 1859. Dáinn í Manitoba 24. janúar, 1940.

Maki: 26. júní, 1886 Guðrún Jónsdóttir f. 1859 í Hafnarfirði í Gullbringusýslu, d. 1947.

Börn: 1. Jón f. 1887 2. Þórunn f. 1894 3. Vilborg f. 1898.

Þau fluttu til Winnipeg í Manitoba árið 1886 og bjuggu í þrjú ár þar í borg. Vorið 1889 fluttu þau vestur í Þingvallabyggð í Saskatchewan þar sem þau bjuggu í fjögu ár. Þau lentu í þurrkatíð á sléttunni, vatn fannst hvergi svo þau fluttu til baka og settust að í Sandy Bay við vestanvert Manitobavatn. Svæði það er rétt norðan við svokallaða Big Point byggð. Þarna vegnaði þeim vel og undu hag sínum í níu ár en árið 1902 fluttu þau norður í Siglunesbyggð þar sem þau bjuggu í tvö ár en vegna flóða í vatninu hrökkluðust þau þaðan eftir tvö ár. Þá fóru þau suður í Lundarbyggð á land norður af Lundar og bjuggu þar síðan.