
Jón Jónsson og Þóra Þorvarðardóttir með Ástu, Kristján og John.
Jón Jónsson var fæddur í Árnessýslu árið 1857. Dáinn í Kaliforníu 1934. Austmann vestra.
Maki: 1) 1893 Þuríður Guðrúnu Bjarnadóttur fædd í Ísafjarðarsýslu árið 1876. Dáin 1899 í Manitoba. 2) 1901 Þóra Þorvarðardóttir f. 1864, d. 1925
Börn: Með Þóru 1. Ásta 2. John f. 1902. Þóra átti Kristján Jónsson árið 1890 með Jóni Ólafssyni Alaskafara og ritstjóra.
Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886. Þuríður Guðrún fór með sínum foreldrum og systkinum árið 1887. Þóra fór vestur árið 1890.
Jón og Þuríður hófu búskap í Narrows við Manitobavatn ásamt foreldrum hennar, Bjarna Kristjánssyni og Bjarneyju Guðmundsdóttur. Þau fluttu í Big Point byggð skömmu fyrir aldamót og þar lést Þuríður. Jón og Þóra bjuggu á Big Point til ársins 1912 en þá fluttu þau tl Winnipeg. Jón flutti til sonar síns John í Kaliforníu skömmu eftir að Þóra lést í Winnipeg.
