Jón Jónsson

ID: 11054
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : Strandasýsla
Dánarár : 1916

Jón Jónsson Hrafndal Mynd Sm

Jón Jónsson fæddist 27. júlí, 1849 í Strandasýslu. Dáinn 14. ágúst, 1916 í Victoria í B.C. í Kanada. Hrafndal vestra.

Ógiftur og barnlaus.

Hann flutti vestur til Winnipeg árið 1887 og fór sama ár suður til N. D. þar sem hann var yfir veturinn. Fór því næst vestur til Calgary þar sem hann bjó en vann í Klettafjöllum. Áfram hélt hann vestur árið 1889 og settist að í Victoria á Vancouvereyju í Bresku Kólumbíu. Hann sneri aftur til Íslands árið 1905 og var þar til ársins 1912, fór þá aftur vestur til Victoria. Drukknaði við laxveiðar.