Hinrik Eiríksson

ID: 11057
Fæðingarár : 1862

Hinrik Eiríksson fæddist 18. febrúar, 1862 í Mýrasýslu.

Maki:  Guðríður Auðunsdóttir f. 1867 í Borgarfjarðarsýslu.

Börn: 1. Ingiríður Vigdís 2. Eirikkína Ragnhildur.

Hinrik flutti vestur til Winnipeg árið 1887 og var þar eitt ár. Fór fyrst suður til N. Dakota en þaðan lá svo leið hans vestur til Victoria á Vancouver-eyju árið 1891. Þar bjó hann í tólf ár, vann byggingavinnu og byggði sér gott hús. Hann flutti á Point Roberts tangann árið 1904, festi kaup á kofa og 40 ekrum. Landið var nánast allt skógi vaxið en hann hreinsaði það smám saman, byggði hús og flutti fjölskylduna frá Victoria á tangann. Guðríður flutti til Vesturheims árið 1889.