Sigríður Skúladóttir

ID: 11066
Fæðingarár : 1869
Fæðingarstaður : Kjósarsýsla
Dánarár : 1960

Sigríður Skúladóttir fæddist í Kjósarsýslu árið 1869. Dáin á Point Roberts árið 1960. Sarah Skulason Olson vestra.

Maki: Magnús Sölvason f. 1852 í Skagafjarðarsýslu, d. á Point Roberts árið 1907. Magnus S. Olson vestra.

Börn: 1. Sigríður (Sarah) 2. María 3. Margrét 4. Þorbjörg (Bertha) 5. Sigurveig 6. Skúli 7. Vilhjálmur (Bill).

Sigríður flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og bjó þar einhver ár. Sama ár fór hálfsystir hennar, Jarþrúður Runólfsdóttir til Utah. Magnús fór þangað ári seinna.  Þau fóru vestur til Victoria á Vancouvereyju í Bresku Kólumbíu og þaðan út á Point Roberts árið 1902.