ID: 11079
Fæðingarár : 1862
Ingibjörg Samúelsdóttir fæddist árið 1862 í Húnavatnssýslu.
Maki: Whalan, af enskum ættum.
Barnlaus.
Ingibjörg flutti vestur til Kanada árið 1887, samferða Guðmundi bróður sínum og konu hans Helgu. Þau fóru til Victoria í Bresku Kólumbíu og þaðan á Point Roberts. Þar kynntist Ingibjörg manni sinum, sennilega var hann ekkill því synir hans bjuggu þar með honum. Ingibjörg missti mann sinn eftir nokkur ár en bjó alla tíð áfram á skaganum.
