ID: 11102
Fæðingarár : 1870
Dánarár : 1962
Guðríður Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 9. september, 1866. Dáin í Manitoba árið 1962.
Maki: 8. apríl, 1893 Bjarni Þorsteinsson f. 14. mars, 1860 í Árnessýslu, d. í Manitoba árið 1945. Eastmann vestra.
Börn: 1. Gestur 2. Þorsteinn f. 1900 3.Vilfred 4. Ólöf 5. Ann 6. Karl
Bjarni og Guðríður fluttu vestur árið 1892 og ári síðar gaf séra Jón Bjarnason þau saman í Winnipeg. Þau bjuggu fyrsta árið í Winnipeg en fluttu svo í Argylebyggð. Þaðan lá leiðin norður í Narrows þar sem þau bjuggu til ársins 1898. Það ár fóru þau á Big Point. Mikil flóð í Manitobavatni vorið 1902 hröktu þau af landi sínu og bjuggu þau rétt norðan við Westbourne í tvö ár. Fóru þá til baka á land sitt og efldu þar búskapinn.
