Guðgeir Eggertsson

ID: 11119
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Hnappadalssýsla

Guðgeir Eggertsson fæddist í Hnappadalssýslu árið 1859.

Maki: 1898 Guðný Árnadóttir f. í Gullbringusýslu 17. maí, 1869.

Börn: Eggert f. 29. ágúst, 1901

Guðgeir fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og bjó þar fyrstu tíu ár sín vestra. Nam land í Stony Mountain, norður af borginni og bjó þar í fjögur ár.  Vorið 1901 fluttu þau í Lögbergsbyggð í Saskatchewan. Guðný fór vestur eftir 1890.