Steinunn Jóhannesdóttir

ID: 11187
Fæðingarár : 1870
Dánarár : 1960

Steinunn Jóhannesdóttir Mynd VÍÆ I

Steinunn Jóhannesdóttir fæddist 19. janúar, 1870 í Borgarfjarðarsýslu. Dáin 14. mars, 1960 í Kaliforníu.

Maki: 11. febrúar, 1902 Dr. Charles Arthur Hayes f. 15. júlí, 1872, d. 1946.

Börn: 1. Steven Worsley 2. Mary Alice.

Steinunn fór til Vesturheims árið 1888 og fór til Winnipeg. Var þar fáein ár, fór ssvo suður til N. Dakota og þaðan til Chicago. Þar innritaðist hún í trúboðsskóla og lauk guðfræðiprófi. Hún starfaði sem aðstoðarprestur meðan á náminu stóð í Indiana og trúboði meðal kínverskra innflytjenda í Oregon. Fór að námi loknu til Kaliforníu og stundaði nám við University of Southern California, School of Medicine í Los Angeles. Þaðan lauk hún prófi í læknisfræði 11. febrúar, 1902 og gekk sama dag í hjónaband. Maður hennar var þá orðinn læknir, útskrifaður úr sama skóla og hún árið áður. Þau fóru saman stuttu seinna til Kína þar sem þau unnu við trúboð og lækningar í 42 ár. Sneru aftur Bandaríkjanna 1942.