Bjarni Þorsteinsson

ID: 11320
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : Árnessýsla

Guðríður, Ólöf, Bjarni, Anna og barnabarnið Iris.

Bjarni Þorsteinsson fæddist 14. mars, 1860 í Árnessýslu. Dáinn í Manitoba árið 1945. Eastmann vestra.

Maki: 8. apríl, 1893 Guðríður Einarsdóttir f.  í Reykjavík 9. september, 1870, d.1962.

Börn: 1. Gestur 2. Þorsteinn 3.Vilfred 4. Ólöf 5. Ann 6. Karl

Bjarni og Guðríður fluttu vestur árið 1892 og ári síðar gaf séra Jón Bjarnason þau saman í Winnipeg. Þau bjuggu fyrsta árið í Winnipeg en fluttu svo  í Argylebyggð. Þaðan lá leiðin norður í Narrows þar sem þau bjuggu til ársins 1898. Það ár fóru þau á Big Point. Mikil flóð í Manitobavatni vorið 1902 hröktu þau af landi sínu og bjuggu þau rétt norðan við Westbourne í tvö ár. Fóru þá til baka á land sitt og efldu þar búskapinn.