Guðný Albertsdóttir

ID: 11484
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1962

Guðný Aðalbjörg Albertsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 15. ágúst, 1877. Dáin að Brú í Argylebyggð í Manitoba árið 1962. Johnson og síðar Anderson í Kanada.

Maki: 1901 í Ballard í Washingtonríki Páll Andrésson f. 1877 í N. Þingeyjarsýslu, d. í Glenboro í Manitoba árið 1964.

Börn: 1. Þórunn Valgerður f. 1902, d. 1978 2. Alice  Karólína 3. Jóhanna Björg 4. Herbert Andrés f. 1908, d. 1950 5. Albert Jón f. 1910, d. 1973 6. Jósef 7. Halldór f. 1913, d. 1921 8. Ella Bentína f. 1915, d. 1995 9. John Stefán 10. Marvin.

Guðný flutti vestur til Minnesota árið 1878 með foreldrum sínum, Alberti Júlíusi Jónssyni og Þórunni Á. Grímsdóttur. Páll flutti vestur til Kanada árið 1888 með foreldrum sínum, Andrési Jóhannessyni og Valgerði Björnsdóttur sem settust að í Argylebyggð í Manitoba. Guðný og Páll kynntust í Washington ríki en fluttu þaðan til Manitoba og tóku yfir búskap föður Páls nærri Brú.