Sigurbjörg Kolbeinsdóttir

ID: 11512
Fæðingarár : 1840
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1922

Sigurbjörg Kolbeinsdóttir fæddist 7. janúar, 1840 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Minnesota 23. apríl, 1922.

Maki: Magnús Mikaelsson f. í N. Múlasýslu 9. nóvember, 1827, d. í Lincoln sýslu í Minnesota 7. júlí, 1906. Foss vestra.

Börn: 1.  Salína Ingibjörg f. á Íslandi 12. janúar, 1874, d. 19. mars, 1912 2. Pétur Halldór f. í Lincoln sýslu 5. desember, 1881 3. Magnús A. f. í Lincoln sýslu 6. maí, 1883.

Magnús og Sigurbjörg fluttu vestur árið 1879 og settust að í Lincoln sýslu í Minnesota. Samferða þeim voru systkini hennar, Kristjana og Kolbeinn Ágúst.