Sigurbjörg Arngrímsdóttir

ID: 11541
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Sigurbjörg Arngrímsdóttir fæddist árið 1867 í N. Múlasýslu.

Maki: Sigfús Runólfsson f. í S. Múlasýslu árið 1860. Frank R. Johnson vestra.

Börn: 1. Arnólfur f. 1887 2. Guðný María f. 16. febrúar, 1891 3. Sigfúsína Sigurbjörg f. 1896 4. Valdimar Eymundur f. 1898 5. Margrét Evangeline f. 1901 6. Alice f. 1903.

Sigurbjörg flutti vestur til Minnesota með systkinum sínum árið 1879 og settist að í Minneota. Sigfús flutti vestur árið 1877 og fór til Minnesota. Hann settist þar að í Minneota og tók virkan þátt í samfélagsmótuninni þar í bæ. Hann sat í stjórn slökkviliðsins, rak íslenska kaupfélagið (Icelandic Coop) og sat í bæjarstjórn frá 1885 til 1892. Hann átti og rak fataverslunina Minneota Clothing Store til ársins 1892. Skömmu eftiraldamótin flutti hann með alla fjölskylduna vestur að Kyrrahafi og settist að í Seattle.