Sigurborg Sigurðardóttir

ID: 11598
Fæðingarár : 1858
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1889

Sigurborg Sigurðardóttir fæddist í N. Múlasýslu 28. júní, 1858. Dáin 1889 í Minnesota.

Maki: Ólafur Guðjón Arngrímsson fæddist í Vopnafirði, N. Múlasýslu árið 1859. Olafur G. Anderson vestra. Dáinn 1903.

Börn:  1. Gustaf  f. 1882  2. Sigrún (Nora) f. 1883; d. 1913  3. Barney f. 1885 4. Carl Emil f. 1886 5. María Guðrún (Runa) f. 1886; d. 1902 6. Bjarni Stefán f. 1888; d.1912.

Sigurborg fór vestur til Minnesota með foreldrum sínum, Sigurði Sigurðssyni og Arnþrúði Jónsdóttur árið 1879 og settust þau að í Lincolnbyggð í Minnesota. Ólafur flutti vestur ásamt systkinum sínum árið 1879 og settist líka að í Lincolnbyggð í Minnesota. Flutti seinna til Minneota og bjó þar.