Sigríður Björnsdóttir

ID: 11606
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1959

Sigríður Björnsdóttir með Björn Freeman Mynd Well Connected

Sigríður Björnsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 28. desember, 1877. Dáin í Minneota 3. október, 1959. Sarah Kline vestra.

Ógift

Barn: Björn Freeman Schram f. 21. október, 1898, d. 6. ágúst, 1945.

Sigríður flutti vestur til Minnesota árið 1879 með foreldrum sínum, Birni Ásbjarnarsyni og Steinunni Jóhannesdóttur. Þau settust að í Lincoln sýslu. Barnsfaðir Sigríðar var Vilhjálmur Frímann Schram.