Hróðný Björnsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1873.
Maki: 1888 Friðrik Eggertsson f. 18. ágúst, 1864 í Barðastrandarsýslu, d. í Roseau í Minnesota 23. mars, 1933.
Börn: 1. Þorlákur f. 1889 2. Björn f. 1890, d. 23. október, 1933 3. Eggert Alexander f. 23. febrúar, 1893, d. 1902 4. Soffía (Sophia) f. 1896 5. Walter f. 1898 6. Jóhanna (Anna) f. 8. ágúst, 1900, d. 6. júlí, 1944.
Hróðný var dóttir Björns Einarssonar og Jóhönnu Jóhannesdóttur sem vestur fluttu til Nýja Íslands árið 1876 og þaðan árið 1880 í Þingvallabyggð í N. Dakota. Friðrik flutti vestur árið 1886 með foreldrum sínum, Eggerti Magnússyni og Soffíu Friðriksdóttur. Þau settust að nærri Mountain í N. Dakota. Friðrik og Hróðný fluttu um aldamótin í Pohlitz hrepp í Roseau sýslu í Minnesota.
