ID: 11678
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Jón Hallgrímsson fæddist árið 1866 í N. Múlasýslu. Hall vestra.
Maki: Anna Pálsdóttir f. 1855 í N. Múlasýslu.
Jón fór vestur með föður sínum Hallgrími Guðmundssyni og hans fjölskyldu árið 1876. Móðir hans, Elísabet Guðmundsdóttir fór með sínum manni, Páli Dalman með sama skipi. Jón flutti í Garðarbyggð í N. Dakota úr Nýja Íslandi árið 1881. Þar bjó hann alla tíð.
