Sigurjóna Eyjólfsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 1. júlí, 1878. Dáin 20. október, 1981 í Minnesota. Sarah Snidal vestra.
Maki: 14. júní, 1899 Ólafur Jónsson f. í N. Múlasýslu 25. apríl, 1869, d. í Lyon sýslu í Minnesota 1. nóvember, 1940. Olafur Rafnson vestra
Börn: 1. Stefanía Christine f. 20. febrúar, 1896 2. Guðmunda María f. 9. september, 1900 3. Cordelia Ingibjörg f. 29. maí, 1902 4. Guðrún f. 18. apríl, 1904, d. 11. september, 1920 5. Kristín Sigurbjörg f. 26. apríl, 1906 7. Björn Eyjólfur f. 22. ágúst, 1908 8. Kristbjörg Agnes f. 13. október, 1910 9. Harvey Jón f. 1. desember, 1912 10. Jóhanna Ingigerður f. 21. maí, 1915 11. Alice Guðrún f. 2. september, 1916 12. Clara Aðalbjörg f. 17. maí, 1920.
Sigurjóna fór vestur 1880 með foreldrum sínum, Eyjólfi Guðmundssyni og Kristínu Björnsdóttur. Ólafur flutti vestur til Minnesota árið 1889 með foreldrum sínum, Jóni Rafnssyni og Guðrúnu Guðmundsdóttur. Þau settust að í Lyon sýslu og þar varð Ólafur bóndi.
