Þorvaldur Björnsson fæddist í N. Múlasýslu 15. október, 1869. Dáinn í Minneota í mars, 1949. Thorvaldur (Walter) Gislason vestra.
Maki: 7. október, 1896 Effie C. Griffing f. 8. ágúst, 1871 í Rochester, Minnesota, d. 1956.
Börn: 1. Melba f. 13. mars, 1898 2. Virgil Voltaire f. 21. feb, 1900 3. Io f. 1902 4. Wilbur Waldo f. 1904 5. Leonard L f. 1908 6. Valdeen f. 5. júlí, 1913
Þorvaldur flutti vestur til Minnesota árið 1879 með foreldrum sínum, Birni Gíslasyni og Aðalbjörgu Jónsdóttur og systkinum. Hann ólst þar upp í íslensku byggðinni nærri Minneota og gekk þar í skóla. Þau hófu búskap í Minneota og bjuggu þar til ársins 1906 en þá fóru þau til Minneapolis. Eftir þriggja ára dvöl þar lá leiðin til Badger í Roseau í Minnesota þar sem þau bjuggu til ársins 1917. Þá sneru þau aftur til Minneota þar sem Þorvaldur átti og rak Gislason Hardware Store og stundaði fasteignasölu.
