
Sveinn Jóhannesson og Ingibjörg (Emma) Björnsdóttir Mynd Well Connected
Ingibjörg Björnsdóttir fæddist 23. september, 1873 í N. Múlasýslu. Dáin 3. júlí, 1943 í Minnesota.
Maki: Sveinn Jóhannesson f. í S. Múlasýslu 5. apríl, 1867, d. í Minnesota 5. maí, 1909. Hólm ( S. J. Holm) vestra.
Börn: 1. Jóhann Björn f. 5. september, 1896 2. Sigurbjörg Soffía f. 30. nóvember, 1897 3. Dóra Guðrún f. 23. mars, 1900 4. Olympia (Olga) Vilborg f. 5. apríl, 1904 5. William f. 26. apríl, 1906.
Ingibjörg flutti vestur með föður sinum, Birni Gíslasyni og fjölskyldu hans árið 1879. Móðir hennar, Sigríður Sigfúsdóttir var þeim samferða. Sveinn flutti vestur árið 1885 með foreldrum sínum, Jóhannesi Sveinssyni og Soffíu Vilhjálmsdóttur og systkinum. Þau settust að í Yellow Medicine sýslu í Minnesota. Mæðgurnar bjuggu saman í Minneota eftir andlát Sveins.
