Þorvaldur Guðmundsson: Fæddur í Vopnafirði í N. Múlasýslu 18.maí, 1868. Dáinn 15. nóvember, 1832. (Thor eða Thomas Gudmundsson vestra)
Maki: Guðfinna Magnea (Maggie) Árnadóttir f. 1880, d. 19.júlí, 1969.
Börn: 1. Þorsteinn (Thorsteinn) Ingimundur f. 1895; d. 1908 2. Sigurbjörg (Bertha) f. 1897 3. Pétur Arnór f. 1899; d. 1900 4. Margrét Cecelia f. 1901 5. Guðrún f. 1902; d. 1904 6. Jón (John) f. 1903 7. Pétur Arnór f. 1905 8. Guðrún Kristín (Christine Gertrude) f. 1907 9. Theodore Miller f. 1910 10. Marvin Steindór Gudmundson f. 1913; d. 1937
Þorvaldur fór vestur árið 1880 11 ára gamall með Eyjólfi Björnssyni og fjölskyldu hans. Þau fóru fyrst til Nova Scotia en fluttu fljótlega þaðan vestur í Lincolnbyggð í Minnesota. Guðfinna Magnea fór vestur með foreldrum sínum, Árna Magnússyni og Sigurbjörgu Árnadóttur árið 1889.
